Félög kvenna
Árið 1871 stofnuðu konur í fyrsta sinn félag á Íslandi en það var Kvenfélag Rípurhrepps í Skagafirði. Áður höfðu konur í hreppnum hist á fundum til að ræða hugðarefni sín, meðal annars menntun kvenna og hreinlæti á heimilum.
Síðan hafa íslenskar konur stofnað félög um öll möguleg málefni: líknar- og góðgerðafélög, kristileg félög og bindindisfélög, kvenréttindafélög og verkalýðsfélög, fagfélög og stjórnmálafélög, tómstundafélög og íþróttafélög. Sum félög eru lítil og staðbundin, önnur eru fjölmenn landssambönd. Oft hafa konurnar í þessum félögum verið ósammála innbyrðis og tekist á um rétta stefnu, enda eru konur ekki einsleitur hópur og ýmislegt annað en kyn þeirra setur mark sitt á líf þeirra og hugmyndir. Félögin hafa þó ekki síður verið vettvangur samstöðu og samtakamáttar þegar á reynir.