Skip to content

Fjársjóðskort //

Treasure hunt
frá Hjarðarhaga 

til Þjóðarbókhlöðu

VIÐ ERUM MARGAR –  Kvennasögusafn í 50 ár – Vefsýning 

Sýningin í raunheimum var aðgengileg á Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni
17. október 2025 – 9. mars 2026

VIÐ ERUM MARGAR er sýning á safnkosti Kvennasögusafns Íslands, sem haldin er í tilefni af 50 ára afmæli safnsins.

Kvennasögusafn var stofnað 1. janúar 1975 á heimili fyrstu forstöðukonu þess, Önnu Sigurðardóttur, í blokkaríbúð hennar við Hjarðarhaga. Stofnun safnsins var fyrsti íslenski viðburðurinn á alþjóðlegu kvennaári Sameinuðu þjóðanna en árið 2025 hefur einnig verið útnefnt kvennaár.

Markmið Kvennasögusafns er að safna, skrá og varðveita heimildir um sögu kvenna og stuðla að rannsóknum á kvennasögu. Starfsemi safnsins byggir á þeirri sannfæringu að líf húsmóðurinnar sem sýður fisk í potti sé jafnórjúfanlegur hluti sögunnar og stjórnmálakarlsins sem stígur í pontu á Alþingi.

Frá árinu 1996 hefur Kvennasögusafn starfað innan Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafn í Þjóðarbókhlöðu en það var draumur Önnu Sigurðardóttur frá upphafi – enda er kvennasagan hluti af þjóðarsögunni.

Hlekkur á sýningarskrá

 

The exhibition was accessible to all guests at the National and University Library 
17 October 2025 – 9 March 2026

WE ARE MANY is an exhibition put on by the Women’s History Archives that celebrates the 50-year anniversary of the collection’s foundation.

The Women’s History Archives was established on january 1st 1975, in a 4th floor flat on Hjarðarhagi, Reykjavík, that was home to Anna Sigurðardóttir. The founding of the Archives was the first event held in Iceland in support of the United Nations International Women’s Year, first held in 1975. The year 2025 has likewise been designated a Women’s Year in Iceland by grassroot organisations for gender equality and labour unions.

The aim of the Women’s History Archives was, and is, to collect, document and preserve women’s history in Iceland, and to encourage research in the field. The operational principle was the conviction that the life of the housewife who boils fish in a pot is just as an integral part of Icelandic history as that of the male politician who steps onto the podium in Parliament.

From 1996, the Women’s History Archives has been part of the National and University Library of Iceland: this was Anna Sigurðardóttir’s dream from the start – as women’s history is part of the history of the Icelandic nation.

Link to brochure