Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn
EN – English

Kvennafrídagurinn

Stúlka með kröfuspjald með kvennamerki og krepptum hnefa, klippimynd á bleikum grunni

Frægasta verkfall á Íslandi er kvennafrídagurinn 24. október 1975. Þá gekk stór hluti íslenskra kvenna út af vinnustöðum sínum og lagði niður störf á heimilunum til að sýna fram á mikilvægi vinnuframlags kvenna. Það tókst svo um munaði og gangvirki þjóðfélagsins lamaðist. Víðs vegar um land voru haldnir baráttufundir með ræðuhöldum og fjöldasöng. Skipuleggjendur áætluðu að 90% kvenna hefðu lagt niður störf og talið er að um 25.000 manns hafi safnast saman á einum stærsta útifundi Íslandssögunnar á Lækjartorgi í miðbæ Reykjavíkur.

Kvennafrídagurinn var skipulagður af ólíkum kvenfélögum og kvennasamtökum og konur tóku þátt í verkfallinu þvert á hið pólitíska litróf. Þótt framtakið væri íslenskt stóð það í nánum tengslum við alþjóðlega kvennabaráttu. Árið 1975 hafði verið útnefnt alþjóðlegt kvennaár af Sameinuðu þjóðunum en 24. október er einmitt dagur Sameinuðu þjóðanna.

Kvennafrídagurinn hefur verið endurtekinn sjö sinnum, árin 1985, 2005, 2010, 2016, 2018, 2023 og 2025. Skjöl allra kvennafrídaganna eru varðveitt á Kvennasögusafni.

1975

1985

2005

2010

2016

2018

2023