Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn
EN – English

Félög kvenna

Teikning á bleikum grunni: konur og börn bera stóra konustyttu með borða, „Manneskja, ekki markaðsvara“

Árið 1871 stofnuðu konur í fyrsta sinn félag á Íslandi en það var Kvenfélag Rípurhrepps í Skagafirði. Áður höfðu konur í hreppnum hist á fundum til að ræða hugðarefni sín, meðal annars menntun kvenna og hreinlæti á heimilum.

Síðan hafa íslenskar konur stofnað félög um öll möguleg málefni: líknar- og góðgerðafélög, kristileg félög og bindindisfélög, kvenréttindafélög og verkalýðsfélög, fagfélög og stjórnmálafélög, tómstundafélög og íþróttafélög. Sum félög eru lítil og staðbundin, önnur eru fjölmenn landssambönd. Oft hafa konurnar í þessum félögum verið ósammála innbyrðis og tekist á um rétta stefnu, enda eru konur ekki einsleitur hópur og ýmislegt annað en kyn þeirra setur mark sitt á líf þeirra og hugmyndir. Félögin hafa þó ekki síður verið vettvangur samstöðu og samtakamáttar þegar á reynir.

Kvenfélög

Kvenfélög eru staðbundin félög sem konur í flestum bæjum, sveitum og sóknum landsins hafa stofnað gegnum tíðina. Þau vinna gjarnan að ýmsum framfaramálum, til að mynda með því að safna fé til góðgerðamála, standa fyrir námskeiðahaldi og fræðslu og hvetja til fegrunar umhverfisins. Smærri kvenfélög tilheyra svo gjarnan stærri héraðs- og landssamböndum, á borð við Kvenfélagasamband Íslands og Bandalag kvenna í Reykjavík.

Hópmynd kvenna úr Bandalagi kvenna í Reykjavík, margar í íslenskum þjóðbúningi

Líknarfélög

Líknar- og góðgerðamál hafa verið algengt viðfangsefni íslenskra kvennasamtaka frá upphafi. Líknarstörf féllu vel að hefðbundnum hugmyndum um hlutverk kvenna við aðhlynningu sjúkra, fátækra og umkomulausra en slík góðgerðastarfsemi skipti sköpum fyrir tíma fullmótaðs, opinbers velferðarkerfis.

Konur í Hvítabandinu sitja saman í stofu við hannyrðir

Hvítabandið

Stofnað árið 1895 sem bindindisfélag kvenna en lagði smám saman meiri áherslu á líknarstörf. Árið 1934 reisti félagið sjúkrahús á Skólavörðustíg og starfrækti það í um áratug en afhenti það síðan Reykjavíkurborg til eignar og umsjónar.

Kvenfélagið Hringurinn

Stofnað árið 1904 í þeim tilgangi að styðja við fátækt, berklaveikt fólk. Félagið reisti hressingarhæli fyrir berklasjúklinga í Kópavogi árið 1926 og rak það um árabil. Síðar helguðu Hringskonur sig því verkefni að koma upp barnaspítala í Reykjavík. Með stuðningi Hringsins var barnadeild opnuð innan Landspítalans árið 1957 en átta árum síðar flutti hún í stærra húsnæði og hlaut þá nafnið Barnaspítali Hringsins.

Landspítalasjóður Íslands

Stofnaður 19. júní 1916 af flokki kvenfélaga, í þeim tilgangi að safna fé til byggingar Landspítala. Með því að leggja sitt af mörkum í þessu langþráða framfaramáli vildu konur þakka fyrir fenginn kosningarétt og kjörgengi. Landspítalinn opnaði dyr sínar árið 1930 en talið er að konur hafi safnað um þriðjungi af byggingarkostnaði spítalans.

Forsetaframboð Vigdísar

Framboð Vigdísar Finnbogadóttur til forseta Íslands árið 1980 var sameiginlegt átak kvenna og karla víða um land. Þótt Vigdís legði áherslu á að ekki ætti að kjósa hana vegna þess að hún væri kona dreymdi margar konur um að sjá kynsystur sína í þessu æðsta embætti þjóðarinnar. Vigdís bar sigurorð af þremur körlum í kosningunum og var forseti Íslands í sextán ár.

Kvennaframboð

Kvennalisti var boðinn fram til Alþingis árið 1922 en áður höfðu konur í Reykjavík, á Akureyri og Seyðisfirði boðið fram kvennalista í bæjarstjórnarkosningum með góðum árangri. Kvennalistinn vann mikinn sigur í þingkosningunum 1922 og efsta kona listans, Ingibjörg H. Bjarnason, varð fyrsta þingkona Íslendinga. Tilraunin var endurtekin á níunda áratug 20. aldar með kvennaframboðum í bæjarstjórnarkosningum í Reykjavík og á Akureyri árið 1982 og framboði Kvennalistans til Alþingis ári síðar. Þá fjölgaði konum úr 6% í 13% meðal sveitarstjórnarfulltrúa og úr 5% í 15% þingmanna. Kvennalistinn starfaði sem sjálfstæð stjórnmálahreyfing fram undir aldamótin 2000.

Konur úr Kvennalistanum raða sér í V á grasflöt, séðar ofan frá

Stéttar- og fagfélög

Konur í ólíkum starfsstéttum hafa stofnað félög til að efla samvinnu sín á milli og gæta hagsmuna sinna. Sum þessara félaga hafa samningsrétt og tilheyra stærri samtökum launafólks, eins og Ljósmæðrafélag Íslands og Fóstrufélag Íslands, sem í dag heitir Félag íslenskra leikskólakennara. Önnur leggja áherslu á félagslíf og fræðslu, eins og Kvenstúdentafélag Íslands, sem nú heitir Félag háskólakvenna.

Félög eiginkvenna

Konur stofnuðu ekki aðeins eigin fagfélög heldur mynduðu einnig félög í tengslum við störf eiginmanna sinna. Eiginkonur bílstjóra hjá Hreyfli stofnuðu Kvenfélag Hreyfils, til að auka kynni sín á milli og vinna að hagsmunamálum bílstjóra og fjölskyldna þeirra. Eiginkonur flugvirkja stofnuðu klúbbinn Fífur, eiginkonur vélstjóra stofnuðu Kvenfélagið Keðjuna, eiginkonur skipstjórnarmanna stofnuðu Kvenfélagið Ölduna og eiginkonur prentara stofnuðu Kvenfélagið Eddu, sem gegndi meðal annars mikilvægu hlutverki í starfsemi félagsheimilis prentara.

Kvennahús

Í miðbæ Reykjavíkur hafa starfað fleiri en eitt kvennahús- félagslegar, pólitískar og listrænar miðstöðvar – sem konur hafa tekið sig saman um að stofna og starfrækja.

Hlaðvarpinn, rautt timburhús með skilti við innganginn og tröppum upp að dyrum

Kvennaheimilið Hallveigarstaðir

Hallveigarstaðir er í eigu Kvenréttindafélags Íslands, Kvenfélagasambands Íslands og Bandalags kvenna í Reykjavík en fleiri samtök kvenna hafa þar aðsetur. Hugmyndin að kvennaheimilinu kviknaði strax á öðrum áratug 20. aldar en það átti upphaflega að standa við Arnarhól. Síðar var því valinn staður á horni Túngötu og Garðastrætis og þar var það vígt árið 1967. Húsið er kennt við fyrstu landnámskonuna, Hallveigu Fróðadóttur.

Hótel Vík

Hótel vík er hús við Vallarstræti sem hýsti ýmis kvennasamtök á níunda áratug 20. aldar. Þar störfuðu Kvennaframboðið í Reykjavík og Kvennalistinn en einnig Kvennaráðgjöfin, Samtök kvenna á vinnumarkaði, Menningar- og friðarsamtök íslenskra kvenna og Íslensk-lesbíska.

Hlaðvarpinn

Hlaðvarpinn við Vesturgötu 3 starfaði sem kvennamenningarhús frá miðjum níunda áratug 20. aldar. Þar fór fram fjölbreytt menningarstarfsemi, svo sem leiksýningar og listsýningar, en einnig störfuðu kvennasamtök á borð við Kvennaráðgjöfina, Kvennaathvarfið og Stígamót í húsinu. Eftir aldamótin 2000 var Hlaðvarpinn seldur og ágóðinn settur í sjóð sem styrkti menningarverkefni kvenna.

Gallerí Langbrók

Gallerí Langbrók var gallerí sem hópur listakvenna starfrækti í Reykjavík frá 1978 til 1986, fyrst á Vitastíg en síðar á Amtmannsstíg 1, þar sem þær sýndu og seldu verk sín. Konurnar komu úr ólíkum geirum myndlistarinnar en margar fengust við nytjalist á borð við keramik og fatahönnun. Galleríið dró nafn sitt af Hallgerði langbrók, sem listakonurnar sögðu að væri „eina rauðsokkan í Íslendingasögunum“.

Friðarfélög

Friðarmál hafa lengi verið hugleikin konum víða um lönd. Íslenskar konur tóku virkan þátt í friðarhreyfingunni, bæði við hlið karla og í sínum eigin félögum. Hreyfingin er alþjóðleg og flest íslensk friðarfélög áttu í miklu samstarfi við systurfélög erlendis.

Konur í kröfugöngu MFÍK með borða, „Engar vetnissprengjur“

Menningar- og friðarsamtök íslenskra kvenna

MFÍK voru stofnuð árið 1951. Einn helsti hvatinn var varnarsamningur Íslands við Bandaríkin en samtökin voru jafnframt innblásin af starfi Alþjóðasambands lýðræðissinnaðra kvenna, sem komið var á fót í lok síðari heimsstyrjaldar. Margar af forystukonum Menningar- og friðarsamtakanna höfðu tengsl við róttæk vinstri stjórnmálaöfl.

Friðarhreyfing íslenskra kvenna

FÍK var stofnuð árið 1983 sem þverpólitískt félag kvenna um friðarmál en mikill kraftur var í alþjóðlegu friðarhreyfingunni á níunda áratugnum, ekki síst í mótmælum gegn kjarnorkuvá. Félagið tók þátt í starfsemi íslensku friðarhreyfingarinnar, meðal annars á alþjóðlegu friðarári Sameinuðu þjóðanna árið 1985.

Íslenskar friðarömmur

Íslenskar friðarömmur voru samtök sem stofnuð voru að erlendri fyrirmynd árið 1988 og störfuðu þar til um miðjan tíunda áratuginn. Stofnendurnir voru ömmur sem vildu vinna að friðarmálum með áherslu á velferð og öryggi barna. Friðarömmurnar skoruðu á íslensk stjórnvöld að setja viðskiptabann á Suður-Afríku, til að mótmæla framgöngu apartheid-stjórnarinnar, en hvöttu einnig til friðarfræðslu í skólum og mótmæltu sýningu ofbeldismynda í sjónvarpi.

Kvenréttindafélög

Fyrsta íslenska félagið sem hafði kvenréttindi á stefnuskrá sinni var Hið íslenska kvenfélag, sem var stofnað árið 1894, en meðal baráttumála þess voru aukin borgararéttindi og menntun kvenna. Rúmum áratug síðar kom Kvenréttindafélag Íslands til sögunnar og helgaði sig kvenréttindabaráttu eingöngu. Síðan þá hafa konur á Íslandi stofnað fjölda félaga sem berjast fyrir jafnrétti kynjanna á einn eða annan hátt.

Hópmynd kvenna úr Kvenréttindafélagi Íslands, margar í þjóðbúningi, utandyra

Kvenréttindafélag Íslands

Kvenréttindafélag Íslands var stofnað árið 1907 á heimili fyrsta formannsins, Bríetar Bjarnhéðinsdóttur, í Þingholtsstræti 18. Stofnun félagsins stóð í tengslum við alþjóðlega bylgju kvenréttindafélaga sem vildu að konur fengju full borgaraleg réttindi. Kvenréttindafélög voru stofnuð víðar á Íslandi. Árið 1908 fór Bríet um og flutti fyrirlestra um kvenréttindi og í kjölfarið voru stofnuð kvenréttindafélög á Ísafirði og Blönduósi, Sauðárkróki, Akureyri og Seyðisfirði. Kvenréttindafélag Eskifjarðar var stofnað árið 1950 að frumkvæði Önnu Sigurðardóttur, sem síðar varð fyrsta forstöðukona Kvennasögusafns.

Bríet

Bríet hét félag ungra femínista sem starfaði frá 1997 til 2005 og var kennt við Bríeti Bjarnhéðinsdóttur. Félagskonur framleiddu útvarpsþætti og stóðu fyrir ýmsum uppákomum, svo sem mótmælum gegn klámvæðingu og rekstri nektardansstaða.

Femínistafélag Íslands

FÍ var stofnað árið 2003. Starfsemi félagsins tók mið af nýju umhverfi í netvæddum heimi en félagið átti rætur sínar að rekja til femínísks tölvupóstlista. Í félaginu komu eldri og yngri baráttukonur saman í starfshópum um málefni á borð við kynbundið ofbeldi og staðalmyndir kynjanna. Karlahópur félagsins var líka virkur og hvatti karlmenn til að segja nei við nauðgunum.

Félög gegn ofbeldi

Um 1980 hófst umræða um kynbundið ofbeldi fyrir alvöru innan íslensku kvennahreyfingarinnar og samtök voru stofnuð til að vekja athygli á vandanum og styðja við þolendur.

Mótmælaaðgerð gegn kynferðisofbeldi 8. mars 1994, konur í svörtu undir borðanum „Við lifðum af kynferðisofbeldi“

Samtök um kvennaathvarf

voru stofnuð sumarið 1982 en þá var umræða um kynbundið ofbeldi hafin innan íslensku kvennahreyfingarinnar. Síðar sama ár opnuðu samtökin Kvennaathvarfið í Reykjavík, sem skjól fyrir konur sem bjuggu við ofbeldi á heimilum sínum, en þar var einnig stutt við þolendur nauðgana og annars kynferðisofbeldis.

Stígamót

Stígamót voru stofnuð árið 1990 sem ráðgjafar- og fræðslumiðstöð þar sem þolendur kynferðisofbeldis gátu leitað eftir aðstoð. Markmið Stígamóta var jafnframt að stuðla að samfélagslegri vitundarvakningu um kynferðisofbeldi.

Íþróttafélag kvenna

Íþróttafélag kvenna var stofnað árið 1934. Markmið þess var að stuðla að íþróttaiðkun kvenna eða, eins og sagði í lögum félagsins, að „efla hreysti, heilbrigði og fegurð íslenzkra kvenna“. Félagið stóð fyrir margvíslegri íþróttaiðkun en lagði mesta áherslu á fimleika og skíði. Félagskonur réðust í byggingu skíðaskála við Skálafell, sem var vígður árið 1938.

Kvenfélag sósíalista

Kvenfélög hafa starfað innan margra íslenskra stjórnmálaflokka. Skjalasöfn þeirra fylgja yfirleitt skjalasöfnum viðkomandi flokka og skila sér því ekki inn á Kvennasögusafn. Undantekning á þessu er skjalasafn Kvenfélags sósíalista, sem starfaði í tengslum við Sósíalistaflokkinn frá 1939. Félagið stefndi að því að breiða út sósíalisma meðal kvenna en þrýsti einnig á um aukin völd kvenna innan flokksins. Á sjöunda áratugnum rann Sósíalistaflokkurinn inn í Alþýðubandalagið en Kvenfélag sósíalista starfaði áfram, uns það var lagt niður árið 1992.

Rauðsokkahreyfingin

Rauðsokkahreyfingin var stofnuð árið 1970 og var leiðandi í kvennabaráttu áttunda áratugarins á Íslandi. Hreyfingin hafði flatt skipulag sem byggði á starfsemi sjálfstæðra hópa um ólík málefni, svo sem launamun kynjanna, dagvistunarmál og nýja löggjöf um þungunarrof. Rauðsokkahreyfingin miðlaði baráttumálum sínum gjarnan á myndrænan og leikrænan hátt, með ýmiss konar pólitískri myndlist og gjörningum.

W.O.M.E.N., the Women Of Multicultural Ethnicity Network in Iceland

Fyrsta gestabók W.O.M.E.N., Samtaka kvenna af erlendum uppruna á Íslandi, sem stofnuð voru árið 2003. Bókin var fyrsta afhending W.O.M.E.N. til Kvennasögusafns við opnun sýningarinnar VIÐ ERUM MARGAR 17. október 2025.