Skip to content

Opnun sýningarinnar VIÐ ERUM MARGAR

    Opnun sýningarinnar VIÐ ERUM MARGAR

    Velkomin á opnun sýningar í Þjóðarbókhlöðu 17. október, kl. 15.


    Dagskrá:

    • Örn Hrafnkelsson Landsbókavörður býður gesti velkomna
    • Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra
    • Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, í framkvæmdanefnd Kvennaárs 2025
    • Marion Poilvez, skjalavörður W.O.M.E.N. og skáld
    • Gerður Steinþórsdóttir, í framkvæmdanefnd kvennafrídagsins 1975, opnar sýninguna

    Ljóðaflutningur: Stofnendur Laufeyjar, ungmennaráðs Kvenréttindafélags Íslands
    Fundarstjórn: Rakel Adolphsdóttir, fagstjóri Kvennasögusafns

    Léttar veitingar að lokinni dagskrá

    VIÐ ERUM MARGAR er sýning á safnkosti Kvennasögusafns Íslands, sem haldin er í tilefni af 50 ára afmæli safnsins. Þema sýningarinnar er félög, vinna og verkföll kvenna. Opnun hennar fer fram á Landsbókasafni föstudaginn 17. október 2025, kl. 15.

    Kvennasögusafn var stofnað 1. janúar 1975 á heimili fyrstu forstöðukonunnar, Önnu Sigurðardóttur, í blokkaríbúð hennar við Hjarðarhaga. Stofnun safnsins var fyrsti íslenski viðburðurinn á alþjóðlegu kvennaári Sameinuðu þjóðanna en árið 2025 hefur einnig verið útnefnt Kvennaár.