Anna Sigurðardóttir og Kvennasögusafn Íslands
Kvennasögusafn Íslands var stofnað á nýársdag 1975 á heimili Önnu Sigurðardóttur (1908–1996) við Hjarðarhaga 26. Anna var fyrsta forstöðukona safnsins og stóð að stofnun þess ásamt Else Miu Einarsdóttur og Svanlaugu Baldursdóttur, bókasafnsfræðingum.
Anna byrjaði að safna heimildum um sögu kvenna árið 1946 en hún var þá kennari, húsfreyja og kvenréttindakona á Eskifirði. Í fyrstu var söfnunin tilviljanakennd. Anna hripaði niður minnispunkta á snepla sem voru við höndina, eins og pappírinn utan af fiskinum. Hugmyndin að stofnun safns kviknaði mun síðar, eða árið 1968, fyrir áhrif frá norrænum kvennasögufræðingum.
Kvennasögusafn hefur aðeins haft einn fastan starfsmann að jafnaði en safnið á sér marga velunnara sem hafa lagt því lið. Áhugahópur um varðveislu og framgang Kvennasögusafns Íslands var stofnaður árið 1987 og vann að því að safnið fengi inni í fyrirhugaðri Þjóðarbókhlöðu ásamt Landsbókasafni og Háskólabókasafni en það hafði verið markmið Önnu frá upphafi. Anna lést í janúar 1996 en á afmælisdegi hennar 5. desember sama ár varð draumur hennar að veruleika þegar Kvennasögusafn var opnað í Þjóðarbókhlöðunni sem sjálfstæð eining innan Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns.
Anna Sigurðardóttir and The Women’s History Archives
The Women’s History Archives of Iceland was founded on New Year’s Day 1975 in the home of Anna Sigurðardóttir at Hjarðarhagi 26, Reykjavík. Anna was the head of the Archives and established the collection with the help of the librarians Else Mia Einarsdóttir and Svanlaug Baldursdóttir.
Anna had started to collect documents relating to women’s history in 1946. At the time she was a teacher, housewife and a women’s rights advocate in the town of Eskifjörður in east Iceland. To begin with, the gathering of materials was random. Anna scribbled notes on scraps of paper she had at hand, such as the paper packaging for fish. The idea of founding the Archives came much later, in 1968, under the influence of Nordic historians of women’s history.
The Women’s History Archives has typically only had a single full-time employee. A special interest group focusing on the preservation and proceedings of the Women’s History Archives was founded in 1987, and it worked towards the Archives being housed at the National and University Library of Iceland, which was Anna’s goal from the beginning. Anna passed away in January 1996. On her birthday, the 5th of December that same year, her dream became reality.